Krabbameinsfélag Árnesssýslu var stofnað 29. maí 1971 og eru félagsmenn 279 talsins. Félagið heldur úti stuðningshópnum Brosinu sem kemur saman aðra hvora viku. Einnig býður félagið upp á uppákomur og fræðslu fyrir félagsmenn sína sem hefur verið mikil ánægja með. http://krabbameinsfelagarnessyslu.is/