Fjöukráin í Hafnarfirði og hótel Víking

submitted by Icetimes on 09/22/14 1

Á Hótel Víking eru 42 vel búin og glæsileg herbergi með sturtu, salerni, kaffivél, hárþurrku, sjónvarpi og þráðlausu interneti. Í anddyri hótelsins er tölva með aðgang að netinu til afnota fyrir gesti. Vestnorrænt þema er á bak við hönnun herbergjanna í efri hæðinni og í neðri hæð eru herbergin í anda Víkinga. Nýlega var tekinn í notkun heitur pottur í glæsilegum bakgarði hótelsins. Gestir hótelsins hafa frjálsan aðgang að pottinum og geta þar slakað á í rólegu og rómantísku umhverfi eftir annir dagsins. Hægt er að leigja baðsloppa á hótelinu. Hótelið er með tólf eins manns herbergjum, tuttugu og eitt þeirra eru tveggja manna, átta eru þriggja manna og eitt er fyrir fjóra.Á hótelinu eru þrjár svítur, glæsilega útbúnar. Haldnar eru Víkingaveislur og við getum tekið á móti allt að 350 matargestum samtímis. Við framreiðum þriggja rétta máltíð og allir réttirnir eru bornir fram í trogum af syngjandi Víkingum og Valkyrjum. Þegar gesti hafa sest til borðs er boðið upp á smakk af rammíslenskum mat s.s. hákarl og harðfisk svona rétt til að kitla bragðlaukana og þessu er skolað niður með snafs af ísköldu íslensku brennivini. Síðan er borin fram sjávarréttasúpa með blönduðum fisktegundum og nýbökuðu brauði. Aðalréttur er gufusteiktur lambaskanki með maukuðum kartöflum og gljáðum garðávöxtum, fersku salati og sósu. Með forréttinum berum við fram frosið íslenskt brennivín og stóran bjór eða léttvínsglas með aðalréttinum. Í eftirrétt er skyr með bláberjum og sorbet. Að sjálfsögðu er hægt að fá aðra rétti ef óskað er. Fyrir ofan 16 metra langan útskorinn bar. Veggir eru skreyttir víkingamunum og myndum eftir Hauk Halldórsson. Allur tréskurður er unnin af íslenskum handverksmönnum. Eins hafa erlendir útskurðarmenn lagt okkur lið við útskurð á skreytingum og skurðgoðum. Freyjuhofið er sá hluti hússins sem er stolt okkar. Þar er glæsilegur salur með mikilli lofthæð. Hann er tileinkaður Freyju og þar ríkir ást og friður innan um stórkostleg listaverk í myndum, útskurði og öðru skrauti. Þar er einnig að finna Þrymskviðu í myndformi eftir Hauk Halldórsson og útskornar Freyjumyndir. Viking performance Margvíslegar uppákomur eru í víkingaveislunum fyrir utan okkar syngjandi starfsfólk. Okkar galvösku víkingar fara um víðan völl með óvæntar uppákomur, jafnvel út í hina guðsgrænu náttúru. Heiðursvíkingaathöfn er alltaf vinsæl, en þá krýnir Fjörugoðinn einn úr hópi gesta "heiðursvíking" með tilheyrandi viðhöfn. Rétt rúmlega 20000 Heiðursvíkingar hafa kropið á kné fyrir Fjörugoðanum og bundist honum tryggðarböndum. Fyrir þá sem þess óska bjóðum við einnig fleiri atriði. Megi spjót þitt í mark fara, örvar þínar beint fljúga, og sverð þitt góðu biti halda. May your spear hit your target, your arrows fly straight, and your sword stay sharp. Fjorukrain - Vikingvillage Hotel Viking and Restaurants Strandgata 50A + 55 - IS-220 Hafnarfjordur - Iceland Tel +354 565 1213 - Fax +354 565 1891 - Mobile: +354 893 6435 vikings@vikingvillage.is - www.vikingvillage.is

Leave a comment

Be the first to comment

Collections with this video
Email
Message
×
Embed video on a website or blog
Width
px
Height
px
×
Join Huzzaz
Start collecting all your favorite videos
×
Log in
Join Huzzaz

facebook login
×
Retrieve username and password
Name
Enter your email address to retrieve your username and password
(Check your spam folder if you don't find it in your inbox)

×