Ásmundarsafn museum

submitted by Icetimes on 09/22/14 1

Listasafn Reykjavíkur er til húsa á þremur stöðum í bænum. Í Hafnarhúsi við Tryggvagötu, á Kjarvalsstöðum við Flókagötu og í Ásmundarsafni við Sigtún.Ásmundarsafn er helgað verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara (1893-1982) og var opnað formlega 1983. Það er til húsa í einstæðri byggingu sem listamaðurinn hannaði að mestu sjálfur og byggði á árunum 1942-50. Formhugmyndir hússins eru sóttar til Miðjarðarhafsins, í kúluhús araba og píramída Egyptalands. Í byggingunni voru heimili og vinnustofa listamannsins. Ásmundur byggði síðar bogalaga byggingu aftan við húsið, sem bæði var hugsuð sem vinnustofa og sýningarsalur. Síðar hannaði arkitektinn Mannfreð Vilhjálmsson viðbyggingu sem tengdi aðalhúsið og bogabygginguna saman. Umhverfis safnið er höggmyndagarður og prýða hann nær þrjátíu höggmyndir listamannsins. Ásmundur Sveinsson var einn af frumkvöðlum höggmyndalistar á Íslandi og sótti innblástur í íslenska náttúru og bókmenntir sem og til þjóðarinnar sjálfrar. Verslun Í Ásmundarsafni er safnverslun þar sem boðið er upp á úrval innlendra og erlendra listaverkabóka og sýningarskráa sem safnið hefur gefið út í gegnum árin, einnig eru afsteypur af verkum Ásmundar Sveinssonar til sölu í versluninni. Verslunin er opin á opnunartíma safnsins. Leiðsögn Í Ásmundarsafni er tekið á móti nemendum og öðrum hópum, sem óska eftir leiðsögn um sýningarnar. Nánari upplýsingar í síma 590 1200 eða á netfangið: fraedsludeild@reykjavik.is Um heimsókn í Ásmundarsafn Gestir eru vinsamlegast beðnir um að snerta ekki listaverkin í safninu. Barnavagnar, bakpokar, stórar töskur, regnhlífar og aðrir fyrirferða miklir hlutir eru ekki leyfðir í sýningarsölunum. Um Ásmund Sveinsson Skoða listaverkin í garðinum (.pdf) Skoða afsteypur Ásmundar Margmiðlunarverkefni um Ásmund Sveinsson

Leave a comment

Be the first to comment

Collections with this video
Email
Message
×
Embed video on a website or blog
Width
px
Height
px
×
Join Huzzaz
Start collecting all your favorite videos
×
Log in
Join Huzzaz

facebook login
×
Retrieve username and password
Name
Enter your email address to retrieve your username and password
(Check your spam folder if you don't find it in your inbox)

×